Terms of service
Almennir skilmálar KEX Studio
1. Upplýsingar um seljanda
KEX Studio er rekið af Kex Studio ehf
kt. 600525-1740
Heimilisfang: Grenilundur 19 600 Akureyri
Netfang: info@kexstudio.is
Sími: 7727218
2. Vörur og verð
Í vefversluninni eru seld vintage og second hand föt, listaverk, endurunninn fatnaður eftir hönnuði og aðrar hönnunarvörur. Allar vörur eru kynntar með myndum og lýsingu eftir bestu getu. Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt (VSK), nema annað sé tekið fram. Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta villur í verði og vörulýsingum.
3. Pöntun og greiðsla
Greiða má fyrir pantanir með Mastercard og debetkortum. Þegar greiðsla hefur borist staðfestist pöntunin og fer í vinnslu.
4. Afhending og sending
Vörur eru sendar með Íslandspósti. Sendingartími er almennt 2–5 virkir dagar innanlands, en getur verið lengri yfir annasöm tímabil. Sendingargjald er reiknað við afgreiðslu. Seljandi ber ekki ábyrgð á töfum hjá flutningsaðila. Annars vegar er hægt að sækja vöruna í verslun okkar í Týsnesi 14A, 600 Akureyri.
5. Skil og endurgreiðsla
Samkvæmt lögum er heimilt að hætta við kaup innan 14 daga frá móttöku vöru. Varan skal vera í sama ástandi og við upprunaleg kaup. Kaupandi ber kostnað af endursendingu nema um galla sé að ræða. Við bjóðum aðeins upp á inneignarnótu en ekki endurgreiðslu nema um sérstök tilfelli eru að ræða, sem verður metið hverju sinni.
6. Kvartanir og ábyrgð
Ef vara reynist gölluð skal hafa samband við okkur innan 7 daga frá móttöku. Við leysum slíkt mál í samræmi við neytendalög. Hægt er að senda kvörtun á info@kexstudio.is.
7. Lög og varnarþing
Skilmálarnir fara eftir íslenskum lögum. Komi til ágreinings skal mál vera rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.